|
Ferðir sumar og haust 2010Orlofsferð 2010 - Austurland. Gist á Hótel Laka og Norðfirði. 27. september, mánudagur: Haustlitaferð. Þimgvellir. 20. október miðvikudagur: Hálfsdagsferð til Hitaveitu Suðurnesja. Reykjanes. 6. desember, mánudagur: Jólaljósaferð á Suðurnes. Erum með fasta tíma á mánudögum kl. 13.30 frá og með 22.02.10 í Hress þrekmiðstöð í Ásvallalaug frítt fyrir 67+ þ.e.a.s. Hafnarfjörður greiðir fyrir þá sem 67+ eru með afsláttarkortum ...Kristinn Magnússon sjúkraþjálfari stjórnar . Félagsheimilið Hraunsel Flatahrauni 3,220 Hafnarfjörður sími 5550142/5556142 Heimasíða: www.febh.is Skrifstofa félagsins er opi mánudaga13-15 og föstudaga 10-12 . Þegar dagskrá 2009/2010 er fylgt úr hlaði er rétt að íhuga hvernig ástandið er í þjóðfélaginu. Við sem teljumst eldri borgarar þessa lands höfum orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu á undanförnum mánuðum. Það virðist sem ríkisstjórn og aðrir opinberir aðilar telji að við séum valdir af því hruni er varð síðastliðið haust. Það virðist svo einfalt að ganga í vasa eldri borgara, enga samninga, bara settar hækkanir og kjaraskerðingar án nokkurs fyrirvara. Þessum aðgerðum þurfum við að mótmæla svo eftir verði tekið, ekki þýðir að gefast upp.Í sambandi við nýja dagskrá er þar nokkur nýmæli, svo sem fjölgun daga i vatnsleikfimi, QI-Gong sem er nokkurs konar hugarorkuleikfimi, söngur undir stjórn Helga Seljan, þar sem sungið er frá hjartanu. En góðir félagar njótið lífsins á meðan stætt er, vonandi finna allireitthvað við sinn smekk. Jón Kr. Óskarsson formaður. Hraunsel dagskrá haustið 2010 Mánudagur Morgunrabb kl.9, Ganga kl.10,frá Haukahúsi Völlum,Félagsvist kl.13.30.Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl. 14.40-15.20,frítt f.handhafa 67+kortsins, 60-66ára gr.kr.2.000 f.mánarðarkort,stjórnandi Kristinn Magnússon,sjúkraþjálfi. Þriðjudagur Morgunrabb kl.9,Ql-Gong kl.10,Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.11.30 Bridge kl.12.30,Helgi Seljan og Sigurður píanóleikari verða síðasta fimmtudag í mánuði í vetur,byrja 23.september n.k. Miðvikudagur Ql-Gong kl.10,Bókmenntaklúbbur verður annanhvern miðvikudag í mánuði kl.11, byrja 8.sept. næst 22.sept.Boltaleikfimi í Haukahúsi Ásvöllum kl.12,Glerbræðsla og handavinna kl.13,Bingó kl.13.30, Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl 14.40-15.20,frítt f.handhafa 67+kortsins,60-66ára gr. kr.2000.-f.mánaðarkort. Fimmtudagur Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.10.45,Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl.11.20 (dýnuæfingar), Félagsvist kl.13.30.Hraunsel opið kl.9-16.30 alla virka daga. Föstudagur Morgunrabb kl.9,Bridge kl.12,30,Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.11.30, Myndlist byrjar þriðjudag 21.sept.kl.10-13 og 13-16. Fyrsti dansleikur haustsins verður 24.sept. Haustlitaferðin verður farin til Þingvalla 27. september. Viðbót á haustdagskrá verður sett inn jafnóðum.
Sæll Jón Kr, Að sjálfsögðu tökum við vel á móti félögum eldri borgara og vonumst til að fá sem flesta eldri borgara á leiki okkar í vetur. Eldri borgarar fá frían aðgang að leikjum okkar í vetur, þeir þurfa þó að sækja miðann sinn í miðasöluna. Það fer nefnilega enginn inn án miða á leiki hjá okkur í vetur. Það bíður ykkar því frír miði í miðasölunni. Ég treysti því að þú hvetjir þitt fólk til að láta sjá sig í Kaplakrikanum í vetur, við tökum vel á móti ykkur.
Kveðja, Sigursteinn Arndal Framkvæmdastjóri hkd. FH
Ályktun frá stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði. Stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði lýsir yfir megnustu óánægju með vinnubrögðheilbrigðisráðherra,þar sem lýst er yfir meðal annars,að hann ætli að leggja niður starfsemiSt.Jósefsspítala Hafnarfirði,í núverandi mynd. Þar starfa á annað hundrað manns af miklum metnaði og hafa gert í áratugi. Þetta er mikillmannauður sem alls ekki má hverfa.Jafnframt minnir stjórn FEBH heilbrigðisráðherra á að samkomulag er gert var um hjúkrunar-heimilið Sólvang fyrir tæpum þrem árum er ekki komið til framkvæmda og virðast ekki veraneinar framkvæmdir þar í sjónmáli. Við krefjumst þess,að nú þegar verði farið að vinna eftir þeim hugmyndum sem þar komu fram.Það er ekki forsvaranlegt að draga Hafnfirðinga endalaust á loforðum um framkvæmdir í öldrun-armálum,sem ekkert verður úr.Einnig minnum við á, að allt síðastliðið ár var talað um að byrja á framkvæmdum við hjúkrunar-heimili á Völlum 7 í Hafnarfirði. Fyrsta skóflustungan hefur enn ekki verið tekin. Félag eldri borgara Hafnarfirði, hefur opnað sérstaka skrifstofu í Hraunseli er verður opin: mánudaga kl.13 - 15 og föstudaga kl. 10 - 12. Félagar eru hvattir til að líta við. Sparidagar eldri borgara Hafnarfirði á Hótel Örk, eru 7.-12. mars. Skráningarlisti liggur frammi í Hraunseli. Upplýsingar í Hraunseli síma 555 0142 Félagsmiðstöðin Hraunseli Flatahraun 3, er opin alla virka daga frá kl. 9-17 Endurbætur á heimasíðunni
Kveðja starfsfólk.
|