Tilkynningar
Endurnýjun.

Dansað í Hraunseli á vorönn 2012:

 10.febrúar Haukur Ingibergsson, syngur og leikur

16. mars Lára og Gullfiskarnir, syngja og leika

18. apríl, síðasti vetrardagur, Kristján Hermannsson,  

 og félagar leika og syngja.

18. maí, Haukur Ingibergsson, syngur og leikur.

  

 

Erum með fasta tíma á mánudögum kl. 13.30 frá

og með 22.02.10 í Hress þrekmiðstöð í Ásvallalaug

frítt fyrir 67+ þ.e.a.s. Hafnarfjörður greiðir fyrir þá

sem 67+ eru með afsláttarkortum ...Kristinn

Magnússon sjúkraþjálfari stjórnar .

 

  

Félagsheimilið Hraunsel Flatahrauni 3,220 Hafnarfjörður

sími 5550142/5556142

Netfang: febh@islandia.is

Heimasíða: www.febh.is Skrifstofa félagsins

er opin mánudaga13-15 og föstudaga 10-12 .

 

Hraunsel dagskrá haust 2011.

 

Mánudagur 

 Ganga kl.10,frá Haukahúsi

Völlum Gaflarakórinn kl.10.30, Glerbræðsla

kl.13, Boccia kl.13.30,Félagsvist kl.13.30,

Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl.14.40-15.20,

frítt f.handhafa 67+kortsins, 60-66ára

gr.kr.2.000 f.mánarðarkort, stjórnandi

Kristinn Magnússon, sjúkraþjálfi.

 

Þriðjudagur 

 Qi-Gong kl.10,

Myndmennt kl.10, Leikfimi í Bjarkarhúsi

kl.11.30 Bridge kl.12.30, Gler kl.13,

Myndmennt kl.13. 

 

Miðvikudagur

Putt kl.10-11.30, Bók-menntaklúbbur

 kl10.30,annan og fjórða, miðvikudag í mánuði,út maí. 

Boltaleikfimi í Haukahúsi Ásvöllum kl.12,

Glerbræðsla og handavinna kl.13, Bingó kl.13.30,

Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl 14.40-15.20,

frítt f.handhafa 67+kortsins,60-66ára gr.

kr.2000.-f.mánaðarkort. Gaflarakórinn kl.16.

 

Fimmtudagur

Qi Gong kl.10,Leikfimi í

Bjarkarhúsi kl.11.20, Glerskurður kl.13,

Pílukast kl.13.30, Félagsvist kl.13.30,

þegar ekki er opið hús. 

 

Föstudagur 

 Bridge kl.12,30, Leikfimi

í Bjarkarhúsi kl.11.30.

 

                                                             

  

Þegar dagskrá 2009/2010  er fylgt úr hlaði er rétt að íhuga

hvernig ástandið er í þjóðfélaginu. Við sem teljumst eldri

borgarar þessa lands höfum orðið fyrir mikilli

kjaraskerðingu á undanförnum mánuðum.

Það virðist sem ríkisstjórn og aðrir opinberir aðilar

telji að við séum valdir af því

hruni er varð síðastliðið haust. Það virðist svo einfalt að

ganga í vasa  eldri borgara, enga samninga, bara settar

hækkanir og kjaraskerðingar án nokkurs fyrirvara. Þessum

aðgerðum þurfum við að mótmæla svo eftir verði tekið,

ekki þýðir að gefast upp.

Í sambandi við nýja dagskrá er þar nokkur nýmæli, svo sem

fjölgun daga i vatnsleikfimi, QI-Gong sem er nokkurs konar

hugarorkuleikfimi, söngur undir stjórn Helga Seljan,

þar sem sungið er frá hjartanu. En góðir félagar

njótið lífsins á meðan stætt er, vonandi finna allir

eitthvað við sinn smekk.

        Jón Kr. Óskarsson formaður.

 

 Sæll Jón Kr, 

Að sjálfsögðu tökum við vel á móti félögum eldri

borgara og vonumst til að fá sem flesta

eldri borgara á leiki okkar í vetur. Eldri borgarar

fá frían aðgang að leikjum okkar í vetur, þeir

þurfa þó að sækja miðann sinn í miðasöluna.

Það fer nefnilega enginn inn án  miða á leiki hjá

okkur í vetur. Það bíður ykkar því frír miði í

miðasölunni. Ég treysti því að þú hvetjir þitt

fólk til að láta sjá sig í Kaplakrikanum í vetur,

við tökum vel á móti ykkur.

Kveðja,
Sigursteinn Arndal
Framkvæmdastjóri hkd. FH

 

 

 

               

Ályktun frá stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði.

 

Stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði lýsir yfir megnustu

óánægju með vinnubrögð

heilbrigðisráðherra,þar sem lýst er yfir meðal annars,að hann

ætli að leggja niður starfsemi

St.Jósefsspítala Hafnarfirði,í núverandi mynd.

Þar starfa á annað hundrað manns af miklum metnaði og hafa

 gert í áratugi. Þetta er mikill

mannauður sem alls ekki má hverfa.

Jafnframt minnir stjórn FEBH heilbrigðisráðherra á að

samkomulag er gert var um hjúkrunar-

heimilið Sólvang fyrir tæpum þrem árum er ekki komið til

framkvæmda og virðast ekki vera

neinar framkvæmdir þar í sjónmáli.

Við krefjumst þess,að nú þegar verði farið að vinna eftir

þeim hugmyndum sem þar komu fram.

Það er ekki forsvaranlegt að draga Hafnfirðinga endalaust

 á loforðum um framkvæmdir í öldrun-

armálum,sem ekkert verður úr.

Einnig minnum við á, að allt síðastliðið ár var talað um að

byrja á framkvæmdum við hjúkrunar-

heimili á Völlum 7 í Hafnarfirði. Fyrsta skóflustungan hefur

enn ekki verið tekin.

  

  

  

                                                                               

  

  

 Félag eldri borgara Hafnarfirði,

hefur opnað sérstaka skrifstofu í

Hraunseli er verður opin:

mánudaga kl.13 - 15 og

föstudaga kl. 10 - 12.

Félagar eru hvattir til að líta við.

  

Sæludagar eldri borgara Hafnarfirði

á Hótel Örk, eru 27.mars-1.apríl.2011

Skráningarlisti liggur frammi í Hraunseli.

Upplýsingar í Hraunseli síma 555 0142

                  

                                                                                                                         

   

Félagsmiðstöðin Hraunseli

Flatahraun 3, er opin alla virka

       daga frá kl. 13-17

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Endurbætur á heimasíðunni


Kveðja starfsfólk.

Read more...
 
Upplýsingar